Þriðjudagur 23.09.2008 - 14:50 - Ummæli ()

Morðinginn er látinn – Tala látinna 10 – Lögregla yfirheyrði hann í gær

youtubeskytta2.jpgMaðurinn sem drap 10 nemendur í iðnskólanum í Kauhajoki í Finnlandi í morgun er nú látinn af völdum skotsára.

Finnsk yfirvöld hafa skýrt frá því að lögreglan yfirheyrði manninn í gærkvöldi vegna þess að á fjórum myndböndum sem hann hafði sett á YouTube sást hann vera að æfa sig með skammbyssu. Með myndskeiðunum var texti þar sem m.a. sagði: „Lífið er stríð og sársauki. Þú berst einn í þínu persónulega stríði“ og einnig: „Þú deyrð næstur.“

Ekki þótti þó ástæða til að vipta hann skammbyssunnni sem hann síðan notaði til drápanna. Hann hafði leyfi fyrir henni. Byssan var af gerðinni Walther P22, hlaupvídd 22.

Myndböndin hafa verið fjarlægt af YouTube. Eitt þeirra má þó sjá hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is