Vetnisleiðin samsæri olíufélaga?
[youtube=www.youtube.com/watch?v=N7Mpe7XfODk]
„Rafmagnið rokkar, vetnið er vitleysa.“ segir bandaríski leikstjórinn Chris Paine, sem gerði hina margverðlaunuðu heimildamynd „Who Killed The Electric Car?“ – Hver drap rafmagnsbílinn?
Paine hefur kvikmyndað fyrir næstu mynd sína á Íslandi síðastliðna viku. Hann segir Ísland fullkomnasta land í heimi fyrir rafmagnsbíla og að rafmagnsbílar séu fullkomnir fyrir Ísland.
Hugmyndin um vetni er að hans mati leið olíuiðnaðarins til að tefja fyrir innleiðingu rafmagnsbíla svo olíufyrirtækin geti áfram ráðið markaðnum fyrir eldsneyti bifreiða.
Chris hefur ekið á rafmagnsbíl síðastliðinn áratug, án nokkurs viðhalds og með mörgum sinnum minni rekstrarkostnaði en vinir hans sem aka bensínbílum. Orkumálastjóri hefur verið einn viðmælenda Chris hér á landi og segir hann að 10% af afli Kárahnjúkavirkjunar myndi nægja til að knýja allan bílaflota Íslendinga 15,000 kílómetra á ári með rafmagni.
Leikararnir Mel Gibson og Tom Hanks, James Woolsey, fyrrverandi forstjóri CIA, og almenningur eru á meðal viðmælenda í myndinni.
Nokkrar samsæriskenningar um hlutverk bandarískra olíurisa, bílaiðnaðarins og ríkisstjórnar George Bush í að koma rafbílaframleiðslu fyrir kattarnef eru rannsakaðar í myndinni og koma þar ýmsar athyglisverðar staðreyndir í ljós.
Forseti Íslands, vörubílstjórar, orkumálastjóri, og 4X4 klúbburinn á landsfundi sínum í Kerlingafjöllum eru meðal þeirra sem Chris hefur rætt við á ferðalagi sínu um landið og er samband Íslendinga við bílinn sinn, allt frá rafmagnsbílum til fjallajeppa, undir smásjánni. Að mati Chris er Ísland fullkomnasta land í veröldinni fyrir rafmagnsbíla og rafmagnsbílar fullkomnir fyrir Ísland.
Chris sýnir heimildamynd sína Hver drap rafmagnsbílinn? – „Who Killed The Electric Car?“, og situr fyrir svörum, í sal 101 í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti þriðjudagskvöldið 23 september klukkan átta.
Ókeypis aðgangur er að sýningu myndarinnar og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Hver drap rafmagnsbílinn – Who Killed The Electric Car?
Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti, Salur 101 Þriðjudagskvöldið 23 september, klukkan 20:00
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is