Bensínið hækkaði um 3-4 krónur í dag og dísel um 5-6 krónur
Bensín og dísilverð hækkaði hjá N1 og Skeljungi í dag.
Lítraverð á bensíni um 3 krónur og dísil um 5 krónur hjá N1. Algengt verð þar er 168,70 á bensíni og dísil 186,60 krónur. Lítraverð á bensíni hækkaði um 4 krónur hjá Skeljungi en dísil um 6 krónur. Algengasta verð á bensínlítra hjá Skeljungi er 169,70 og 185,60 á dísil lítra. Þett kom fram í útvarpsfréttum RÚV.
Eldsneytisverð hefur ekki hækkað hjá Orkunni, ÓB, Atlantsolíu og Olís er óbreytt. Hjá tveimur síðastnefndu fengust þær upplýsingar að eftir fall krónunnar bendi allt til þess að eldsneytisverð verði hækkað. Magnús Ásgeirsson, hjá N1, segir að ástæða hækkunarinnar hjá þeim nú sé fyrst og fremst vegna þróunar gengisins en dollarinn kosti nú 95 krónur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is