Miðvikudagur 24.09.2008 - 17:16 - Ummæli ()

Jóhann R. Benediktsson og þrír aðrir lykilstarfsmenn segja upp

johann-r.jpgJóhann R. Benediktsson, lögreglu- og tollstjórinn á Suðurnesjum, og þrír samstarfsmenn hans óskuðu í dag eftir að fá að hætta störfum þann 1. október næstkomandi.

Jóhann segir algjöran trúnaðarbrest orðinn milli embættisins og dómsmálaráðuneytisins.

Í fréttatilkynningu sem Jóhann sendi frá sér og birt er á vef RÚV segir að hann hafi tilkynnt samstarfsfólki sínu þetta á starfsmannafundi í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju í dag.

Jóhann tilkynnti einnig að á undanförnum vikum hefðu þrír lykilstarfsmenn hjá embættinu einnig óskað eftir því að hverfa frá störfum frá sama tíma. Það eru Eyjólfur Kristjánsson staðgengill hans, Guðni Geir Jónsson fjármálastjóri embættisins og Ásgeir J. Ásgeirsson starfsmannastjóri þess.

Í tilkynningunni kemur m.a. fram að aðdragandi málsins hafi verið langur, en kaflaskipti hafiu orðið í mars sl. þegar dómsmálaráðherra tilkynnti að hann hygðist skipta embættinu upp. „Sú ákvörðun ráðherra var fyrirvaralaus og án nokkurs samráðs við fag- og stéttarfélög eða yfirstjórn  embættisins. Ákvörðun ráðherra og aðdragandi hennar mætti mikilli gagnrýni bæði meðal starfsmanna embættisins og annarra og tilkynnti Jóhann að hann myndi hann hætta störfum ef af uppskiptingunni yrði. Frumvarp til breytinga á tollalögum sem fól í sér fyrrnefnda uppskiptingu var stöðvað meðförum Alþingis,“ segir í tilkynningu Jóhanns.

„Samskipti ráðuneytisins og embættisins hafa frá þeim tíma verið afar stirð. Embættið hefur á undanförnum mánuðum lagt sig fram við að vinna markvisst að lausn deilunnar og mætt kröfum ráðuneytisins um fjárhagslega aðgreiningu tollgæslu, lögreglu og öryggisdeildar meðan fagleg yfirstjórn þeirra yrði óbreytt. Sú vinna embættisins hefur ekki fengið hljómgrunn innan ráðuneytisins.

Ítrekaðar tilraunir yfirstjórnar embættisins til að bæta samskipti þess og ráðuneytisins hafa ekki borið árangur og er nú svo komið að algjör trúnaðarbrestur er á milli aðila að mati embættisins. Við þær aðstæður er ljóst að embættið kemur ekki til með að njóta sannmælis og sanngjarnrar meðferðar innan ráðuneytisins. Því metur lögreglu- og tollstjóri stöðuna þannig að nýir stjórnendur, þóknanlegir ráðuneytinu, verði að koma að embættinu. Þannig verði framtíð starfsmanna og starfseminnar tryggð.“

Mynd – Víkurfréttir


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is