Föstudagur 26.09.2008 - 09:24 - Ummæli ()

Eva Mendes skotin í Keiru Knightley

827833721.jpgEva Mendes er hamingjusöm í sambandi sínu við kærastann George Gargurevich, en hún viðurkennir þó að henni finnist bæði kynin aðlaðandi.

Og þessa dagana er hún svolítið skotin í leikkonunni Keiru Knightley.

„Ég er með Keiru Knightley-þráhyggju,“ sagði hún við tímaritið InStyle.

„Að mínu áliti þá er hún með allt á hreinu.“

„Hún tekur sénsa, hún þorir að gera eitthvað nýtt, en hún er samt alltaf dömuleg.“

„Hún er falleg á svo óvenjulegan hátt og með eftirtektarverðasta andlit sem ég hef séð í langan tíma.“

„Ég er svolítið skotin í henni í augnablikinu.“

En Keira Knightley er ekki sú eina sem hefur fangað athygli Evu.

„Ég er líka dolfallin yfir Cate Blanchett því að hún geislar af einhverjum krafti sem virðist alveg óþvingaður,“ sagði hún.

„Hún er alltaf að gera það gott í æðislegum kjólum sem eru svo ólíkir öllu því sem aðrir klæðast.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is