Föstudagur 26.09.2008 - 11:53 - Ummæli ()

Ísraelsmenn fengu ekki grænt ljós Bush fyrir árás á Íran

israel_f16.jpgÍsraelsk stjórnvöld hugleiddu alvarlega síðastliðið vor að gera hernaðarárás á kjarnorkuvinnslustöðvar í Íran, að sögn breska blaðsins Guardian.

Þegar Ísraelsmenn báðu um grænt ljós á árásirnar hjá George Bush bandríkjaforseta tjáði hann þeim að hann styddi þær ekki og ætti ekki von á að endurskoða þá afstöðu sína það sem eftir væri af forsetatíð sinni.

Guardian hefur þetta eftir „háttsettum evrópskum diplómat,“ sem segir að Ehud Olmert, forsætisráðherra hafi borið þetta undir Bush í Ísraelsheimsókn hans 14. maí.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is