Föstudagur 26.09.2008 - 10:32 - Ummæli ()

Paul McCartney með meiri öryggisgæslu en Bandaríkjaforseti

83008718.jpgFyrrum Bítillinn Paul McCartney spilaði sína fyrstu tónleika í Ísrael í gærkvöldi fyrir framan 40.000 fagnandi aðdáendur.

Áætlað var að Bítlarnir myndu halda tónleika í Ísrael árið 1965, en tónleikarnir voru bannaðir þar sem yfirvöld sögðu að Bítlarnir hefðu spillandi áhrif á æsku landsins.

Paul McCartney steig þó loksins á svið í Yarkon-garði í Tel Aviv í gærkvöldi – 43 árum seinna.

Mikill öryggisviðbúnaður var á staðnum eftir að morðhótanir á hendur Pauls bárust frá ofsatrúarhópum, en hann lét þó hótanirnar ekki aftra sér.

Hann sagðist vilja senda friðarskilaboð til Mið-austurlanda með framkomu sinni á tónleikunum, en þeir voru haldnir í tilefni af 60 ára afmæli Ísraels.

Þó er sagt að Paul hafi fengið meiri öryggisgæslu en sjálfur George Bush þegar hann heimsótti landið.

Fimm þúsund öryggisverðir gættu öryggis hans, þ.á m. tuttugu menn úr ísraelsku leyniþjónustunni Mossad ásamt mönnum úr bresku leyniþjónustunni M16, en megnið af öryggisverðinum skipuðu óbreyttir lögregluþjónar í Ísrael.

„Við tökum ekki áhættuna á neinu,“ er haft eftir uppljóstrara í breska slúðurblaðinu The Mirror.

„Öryggisráðstafanirnar eru meiri en við höfum nokkurn tímann séð.“

„Allt hefur verið gert til þess að tryggja það að atburðurinn fari friðsamlega fram.“

Kostnaður við öryggisráðstafanirnar er sagður hafa verið næstum þrjú hundruð milljónir íslenskra króna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is