Fimmtudagur 02.10.2008 - 12:26 - Ummæli ()

Lét taka nektarmyndir til að minnast brjóstanna sem voru fjarlægð

82684377.jpgChristina Applegate var greind með brjóstakrabbamein í ár og lét í kjölfarið fjarlægja bæði brjóst sín.

Áður en hún undirgekkst skurðaðgerðina segir hún þó að hún hafi látið taka af sér sínar fyrstu og síðustu nektarmyndir til þess að minnast brjóstanna.

„Ég passaði upp á það að ég hefði nærmyndir af þeim frá öllum sjónarhornum svo að ég geti munað eftir þeim,“ sagði hún í viðtali hjá Opruh Winfrey.

Christina hefur sýnt mikið hugrekki í baráttu sinni við krabbameinið, en segir að bringan á henni sé nú alls kostar ólík því sem hún var áður en hún undirgekkst skurðaðgerðina.

„Það eru ör, og það vantar ýmislegt, og þau eru ekki eins í laginu né eins viðkomu, og það er erfitt að halda á töskunni sinni og það er svo margt sem er öðruvísi,“ sagði hún.

„Þetta er sorglegt. Ég græt yfir þessu alla vega einu sinni á dag því það er erfitt að líta framhjá þessu þegar maður stendur fyrir framan spegil.“

Hún segir þó að það sé einn kostur við það að brjóstin hafi verið fjarlægð.

„Ég þarf ekki að ganga í brjóstahalda. . . aldrei nokkurn tímann aftur.“

Christina segist alltaf hafa búist við því að vera greind með krabbamein þar sem mamma hennar hefur tvisvar fengið brjóstakrabbamein.

„Það var hluti af mér sem vissi að þetta myndi gerast,“ sagði hún.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is