Föstudagur 03.10.2008 - 12:07 - Ummæli ()

Gylfi Magnússon: Fjármálakerfið í greiðsluþroti – Sigurður Einarsson, Davíð, Geir hafna þessu

isl-bankar.jpgÍslenska fjármálakerfið er komið í greiðsluþrot. Útlit er fyrir að loka verði bönkum um helgina, segir Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands í hádegisfréttum Útvarps. Íslenska ríkið er þó ekki komið í þrot, segir hann.

Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings hafnar þessari greiningu Gylfa, segir hana óábyrga og trúverðugleika Háskóla Íslands vera farinn að nálgast gjaldþrot. Hann segir vandamálið lausafjárvanda. En bankarnir eigi fyrir skuldum.

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir í samtali við RÚV að sparifjáreigendur þurfi ekki að óttast um innistæður sínar í bönkunum og engin ástæða að taka þær út . Ríkisstjórnin vinni að lausn efnahagsmálanna með fjármálastofnunum og aðilum vinnumarkaðarins í ágætu samráði. Geir segir að ekki sé komið að neinu greiðsluþroti banka. Bankar séu í varnarbaráttu.

Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir menn verða að tala varlega. Ástandið sé erfitt og kvikt. En heilu hagkerfin geta farið vegna óvarlegs tals. Það er ofmælt að það sé þurrð í kerfinu. En það sé hikst í kerfinu. Davíð segir innstæður fólks í bönkunum allar tryggðar.

Þetta er mjög erfitt en menn eiga að reyna standa saman og ekki grafa undan viðkvæmu ástandi. Því þá gæti vont versnað. Davíð segir að ekki sé hægt að gefa út yfirlýsingar án þess að eitthvað standi þar að baki.

Gylfi segir bankana og fjölda fyrirtækja í reynd gjaldþrota. Hann segir blasa við að gripið verði til róttækra aðgerða um helgina sem feli í sér í reynd að bönkunum verði lokað og erlendar eignir þeirra seldar í kjölfarið.

Seðlabankinn verður þrátt fyrir þetta ástand að útvega gjaldeyri en þó er útséð með að hægt sé að útvega nægilegt magn til að halda bankakerfinu gangandi, segir Gylfi, og það myndi ekki leysa aðalvandann. Eignir íslensku bankanna duga ekki fyrir skuldum þegar tekið er tillit til þess að fjöldi fyrirtækja er gjaldþrota í reynd.

Gylfi tekur fram að landið sé ekki gjaldþrota eða ríkið en allmörg íslensk hlutafélög, og þar með talið bankarnir, séu í reynd tæknilega gjaldþrota.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is