Sunnudagur 05.10.2008 - 23:32 - Ummæli ()

Geir Haarde segir engar aðgerðir nú nauðsynlegar, aðeins að bankar muni selja erlendar eignir

geir-radherrabust1.jpgÓhætt er að segja að það hafi komið verulega á óvart þegar Geir H. Haarde forsætisráðherra tilkynnti að loknum fundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum um klukkan 23:30 í gærkvöldi, að ekki væri lengur þörf á neinum aðgerðum stjórnvalda, þrátt fyrir  þindarlaus fundahöld alla helgina um væntanlegar aðgerðir til bjargar fjármálakerfinu.

Geir sagði að vilji sé til þess hjá bönkunum að draga úr umsvifum sínum erlendis og selja eignir sínar þar.

Hann útlistaði ekki hvað fælist í þessu. Ekkert samkomulag við bankana hefur heldur verið tilkynnt og óljóst er hvaða breytingar verða hjá bönkunum. Sterkur orðrómur hefur verið um breytt eignarhald þeirra, yfirtökur og/eða samruna í ýmsum útgáfum. Ekkert af því fæst hins vegar staðfest. Einna sterkastur orðrómur hefur verið um yfirtöku Kaupþings á Landsbanka, sem heimildir innan Landsbankans þvertaka fyrir það.

Svo virðist sem ríkisstjórnin bíði nú þess að bankarnir geri sjálfir út um sín mál og létti á skuldum sínum með sölu erlendra starfseininga og gangi í samþjöppun og niðurskurð.

„Þessi helgi hefur skilað því að við teljum núna ekki lengur nauðsynlegt að vera með sérstakan pakka með aðgerðum,“ sagði Geir og að nú væri ekki lengur sama spenna í málunum eins og verið hefði fyrir helgi.

„Bankarnir ætla að minnka við sig. Mér sýnist að það sé almenn samstaða um það að þeir þurfa að minnka sín umsvif í útlöndum. Þeir eru með mikla starfsemi þar og það er tímabært að draga úr henni og minnka efnahagsreikninginn sem því nemur.

Ég tel að það sé mjög góður vilji hjá bönkunum að fara í að selja eignir í útlöndum og ég tel að það sé mjög góður skilningur hjá þeim á því sem þarf að gera.“

Samkvæmt fréttum RÚV var tilboð lífeyrissjóðanna að flytja heim 200 milljarða króna eignir erlendis frá. Þeir settu það þó sem skilyrði að bankarnir gerðu slíkt hið sama.

Geir neitaði því að búið sé að útvega 500 milljarða bankalán erlendis frá.

Geir fór síðan á fund með þingflokki Sjálfstæðisflokksins og sagði: „Svo ætla ég heim og vonast til að geta fengið smá hvíld. Það er varla að ég sé búinn að borða morgunmat.“

En eftir þingflokksfund sjálfstæðismanna í Alþingishúsinu var Geir þó ekki á heimleið alveg strax. Hann sagði þá, þegar hann var spurður hversu miklar eignir bankarnir myndu losa sig við og hvort það yrði til jafns við þá 200 milljarða sem lífeyrissjóðirnir myndu hugsanlega flytja heim af gjaldeyri: „Það er náttúrulega mál sem bankarnir þurfa að ákveða hvað þeir geta selt mikið og komið með heim.“

Hann sagði að gagnvart lífeyrissjóðunum væru atriði sem enn ætti eftir að semja um. Það mál væri ekki búið því þar væru tæknileg atriði sem fagmenn þyrftu að fjalla um.

Geir vildi árétta að innistæður á reikningum í íslenskum bönkum og sparisjóðum hér á landi yrðu tryggðar að fullu, ríkissjóður muni sjá til þess. Tilkynnt var í Bretlandi í kvöld sömuleiðis að innistæður á ICESAVE and KAUPTHING EDGE reikningum Landsbankans og Kaupþings þar væru 100% tryggðar upp að sem svarar 7 milljónum króna samkvæmt reglum FSCS (Financial Service Compensation Scheme). Þetta hámark mun hækka í 10 milljónir á þriðjudag.

Geir hittir forystumenn stjórnarandstöðunnar í þinginu klukkan 9:30 í dag til að upplýsa þá um stöðu mála. Fundur með fulltrúum lífeyrissjóðana verður svo klukkan 11.

Sjá fréttir RÚV, mbl.is, Viðskiptablaðið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is