Sunnudagur 05.10.2008 - 17:33
- Ummæli
()
Björgvin G: Biðlað til seðlabanka helstu vinaþjóða – Enn ekki ljóst um lán frá þeim
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, staðfesti við fjölmiðla fyrir stundu að biðlað hefði verið til seðlabanka „okkar helstu vinaþjóða“ um aðstoð út úr efnahagsvandanum, en ekki lægi fyrir hver viðbrögð þeirra væru.
Hann segir ekki ekki ljóst hvort Seðlabanki Íslands fái lán í útlöndum.
Björgvin er nú ásamt öðrum ráðherrum á fundi í Ráðherrabústaðnum með forsvarsmönnum bankanna, Sigurði Einarssyni og Hreiðari Má Sigurðssyni frá Kaupþingi, Björgólfi Thor Björgólfssyni og þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri S. Kristjánssyni hjá Landsbankanum, samkvæmt frétt Mbl.is.
Þá er Jón Steinsson, dósent í hagfræði við Columbia-háskóla, einnig mættur til fundar að nýju.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is