Geir Haarde: Engin áform um að skipta um seðlabankastjóra – Þarf að framlengja kjarasamninga
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði „svo sem ekki mikið nýtt að frétta“ þegar hann ræddi við fréttamenn nú um klukkan sex. „Hvort aðgerðaáætlun er réttnefni verður að koma í ljós.“
Hann vildi ekki svara því hvort eitthvað væri fast í hendi um lán til Seðlabankans. Seðlabankinn þyrfti að svara til um hvort einhverjir samningar hefðu náðst við erlenda seðlabanka.
Hann sagðist ekki geta tekið ábyrgð á tölunni 1.600 milljörðum króna, en sú upphæð var nefnd í frétt breska blaðsins Telegraph í dag sem sú innspýting sem í bígerð væri fyrir fjármálakerfið.
Hann sagði aðila vinnumarkaðarins hafa verið boðaða til fundar klukkan 20. „Við teldum æskilegt ef hægt er að framlengja kjarasamninga svo allir launþegar hafi fast land undir fæti,“ sagði Geir. Hann sagði að þá þyrfti að hnika til í gildandi smaningum.
Geir vonast til að hægt verði að tilkynna fyrir opnun markaða í fyrramálið hluta af aðgerðapakka stjórnvalda og hagsmunaaðila en annað gæti komið síðar.
Hann sagði engin áform um að skipta um seðlabankastjóra. Geir sagði lífeyissjóði hafa tekið málaleitan stjórnvalda vel, en enn ætti eftir að koma sér saman um ýmis smáatriði. Hann sagði að menn þyrftu að gá að því að bankakreppa ríkti nú í heiminum, sennilega sú versta frá 1914 og ástandið á fjármálamarkaði væri líklega verra en í heimskreppunni á fjorðaáratugnum.
Geir sagði eigendur bankanna ráða því hvort um sameiningar verður að ræða á þeirra vettvangi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is