Sunnudagur 05.10.2008 - 22:00 - Ummæli ()

Ögmundur: Þetta er enn eitt stórt spurningamerki – Sigurður G: Allt klárt

ogmundur-jonasson.jpgÖgmundur Jónasson, formaður BSRB, kom af fundi fyrir skömmu  ásamt öðrum fulltrúum lífeyrissjóðakerfisins með fulltrúum ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Ögmundur sagði enga niðurstöðu hafa fengist í málið. „Þetta er enn eitt stórt spurningamerki,“ sagði Ögmundur, samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins.  Ögmundur sagði enn vera óvíst að lífeyrissjóðirnir komi að fyrirhuguðum aðgerðum og lagði áherslu á að þeir tryggi fyrst og fremst hag sinna lífeyrisþegna. Fyrst þurfi að sjá hvert fjármálakerfið stefnir, áður en lífeyrissjóðirnir komi að málinu.

Fulltrúar bankanna funda nú með ríkisstjórninni sem er öll samankomin í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu, utan Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra og formanns Samfylkingarinnar.

Fulltrúi Seðlabankans á fundum með ríkisstjórninni er Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri, ekki Davíð Oddsson.

Fulltrúar Glitnis, Sigurður G. Guðjónsson, Lárus Welding og Þorsteinn Már Baldvinsson mættu á tíunda tímanum til fundar sem stóð í um hálftíma. Eftir þann fund sagði Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarmaður í Glitni að allt væri klárt, án þess að hann útskýrði það frekar.

Fulltrúar Landsbankans sitja nú á fundi með stjórnvöldum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is