Angelina Jolie vill fleiri börn
Undanfarið hafa sögur verið á kreiki um að Angelina Jolie þjáist af fæðingarþunglyndi og að hún og Brad Pitt séu við það að hætta saman.
Í nýju viðtali hlær Angelina að þessum sögusögnum, en viðurkennir þó að það sé erfitt fyrir hana og Brad að eiga rómantískar stundir saman með sex börn á heimilinu, þ.á m. nýfædda tvíbura.
„Meira að segja ef við læsum að okkur þá koma börnin og banka,“ segir hún.
„Við reynum oft að fara saman í bað á kvöldin og sitja og spjalla, en þau heyra vatnið renna og langar að skella sér ofan í.“
„En þetta er skemmtilegt og yndislegt – málið með það að eiga sex er það að þegar maður á fleiri en þrjú eða fjögur þá er allt þegar orðið svo brjálað að það skiptir ekki máli þó það bætist við meiri ringulreið.“
Aðspurð um það hvort að fjölskyldan hennar sé nú orðin fullskipuð hlær Angelina og hristir höfuðið.
„Nei,“ segir hún.
„Líf mitt er að vera með fjölskyldunni minni.“
„Börnin mín færa mér svo mikla gleði og svo mikinn frið. Þau eru það eina sem skiptir mig máli.“
„Ég get átt ömurlegan dag og fólk getur sagt hræðilega hluti um mig, en ég kem heim og börnin mín elska mig og mér líður eins og mikilvægustu manneskju í heiminum.“
Angelina mætti á forsýningu kvikmyndarinnar Changeling í New York um helgina og er það í fyrsta sinn sem hún kemur opinberlega fram eftir fæðingu tvíburanna hennar í júlí.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is