Mánudagur 06.10.2008 - 08:47 - Ummæli ()

Dagpeningar ríkisráðs Íslands, ráðherra og forseta nema rúmlega 21 milljón króna

img_5982.jpgRáðherrar núverandi ríkisstjórnar hafa þegið rúmlega 18,4 milljónir í dagpeninga síðan stjórnin tók við. Allir ráðherrar hafa þegið einhverja dagpeninga þó upphæðir séu mismunandi, segir í Fréttablaðinu.

Utanríkisráðherrann, Ingibörg Sólrún Gísladóttir, hafði þegið tæpar átta milljónir í dagpeninga fram til 15. september.
Ferðir Ingibjargar eru 32, en maki hennar hefur ekki þegið dagpeninga.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkumálaráðherra, hefur fengið greiddar 2,2 milljónir í dagpeninga og maki hans um 470 þúsund krónur.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur þegið tæplega 2,9 milljónir króna og skákar þar forsætisráðherra um eina milljón. Maki hennar hefur ekki fengið dagpeninga.

Geir H. Haarde mun hafa þegið 1,9 milljónir í dagpeninga og maki hans 540 þúsund. Trúlega hefur bæst við þessar tölur eftir að forsætisráðherra fór á allherjarþing Sameinuðu þjóðanna.

Lægstu upphæðina hefur Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra fengið, eða 527 þúsund krónur.

Kristján Möller samgönguráðherra hefur fengið 628 þúsund krónur og Jóhanna Sigurðardóttir 605 þúsund. Makar þessara ráðherra hafa ekki þegið dagpeninga.

Forseti Íslands, sem er hluti af ríkisráðinu, hefur fengið tæpar 2,8 milljónir í dagpeninga, en eiginkona hans, Dorrit Moussaieff hefur aldrei þegið eyri.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is