Mánudagur 06.10.2008 - 19:22
- Ummæli
()
Steingrímur J. krefst rannsóknar – Menn verði látnir sæta ábyrgð
Steingrímur J. Sigfússon segir óhjákvæmilegt í framhaldinu að „rannsaka hvernig það gat gerst að við komumst svona fram á bjargbrúnina.
Almenningur á skýlausa kröfu á að aðdragandi alls þessa verði rannsakaður ofan í kjölinn og þeir sem bera ábyrgð verði látnir axla siðferðislega, viðskiptalega, lagalega og pólitíska ábyrgð gerða sinna og svari til saka fyrir þær.“
Steingrímur segir að það verði að hafa að leiðarljósi við framkvæmd þeirra laga sem nú verða samþykkt á Alþingi að skaðinn verði lágmarkaður fyrir almenning, þjóðarbúið og framtíðina.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is