Mánudagur 06.10.2008 - 18:48
- Ummæli
()
Tveir eftirlýstir fyrir líkamsárás, rán
Lögreglan leitar að þessum tveimur mönnum sem hér eru á mynd. Þeir eru grunaðir rum rán og alvarlega líkamsárás á mann á sjötugsaldri á Laugavegi um hálffjögur aðfararnótt sunnudags. Mennirnir eru taldir vera af erlendu bergi brotnir og á aldrinum 25 til 30 ára.
Verið er að kanna hvort þeir hafi einnig rænt tösku af konu á þrítugsaldri sem var á gangi við Hverfisgötuna. Ekki er fullvíst hvort um sömu menn sé að ræða, en ræningjarnir í því tilfelli voru einnig tveir.
Fólk sem kann að hafa einhverjar upplýsingar um mennina er beðið að hringja í lögregluna í síma 444-1100.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

