Þriðjudagur 07.10.2008 - 10:16 - Ummæli ()

Cameron Diaz: Dekurrófa og mjaltastúlka

81049281.jpgCameron Diaz hefur viðurkennt að henni reynist erfitt að viðhalda samböndum vegna þess að hún er dekurrófa.

Leikkonan, sem nú er 36 ára og í sambandi við fyrirsætuna Paul Sculfor, segir að það sé sjálfselskan sem standi í vegi fyrir henni þegar kemur að rómantík.

„Það er erfitt fyrir mig að skuldbinda mig,“ segir hún.

„Það er líklega vegna þess að mig skortir aga.“

„Hreinskilnislega sagt þá er ég bara dekurrófa sem er vön því að allt gangi samkvæmt mínu höfði!“

„Ég er viss um að það er vandamálið. Það á örugglega eftir að koma mér í koll seinna meir, en í augnablikinu er ég bara ánægð með það.“

Cameron segir einnig að ef hún hætti í kvikmyndabransanum þá muni hún hugsanlega reyna fyrir sér sem mjaltastúlka.

„Ég veit ekki hvort ég kem til með að búa til kvikmyndir eða eitthvað allt annað,“ segir hún.

„Kannski ég mjólki beljur. Ég er á einhvers konar mjaltastúlku-trippi þessa dagana.“

„Einhverra hluta vegna þá sé ég mig fyrir mér klukkan fimm á morgnana vera í hálfgerðri hugleiðslu að mjólka belju.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is