Risalán frá Rússlandi – styrkir gjaldeyrisforða og grundvöll íslensku krónunnar
Sendiherra Rússlands á Íslandi, Victor I. Tatarintsev, hefur tilkynnt formanni bankastjórnar Seðlabankans að Rússland muni veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð fjögurra milljarða evra.
Þetta samsvarar um 680 milljörðum króna á því gengi sem gilti þegar yfirlýsingin var gefin en um 524 ma. kr. miðað við fastsetta evrugengið 131 kr.
Tilkynnt var um lánið í frétt frá Seðlabankanum í morgun. Á fundi með blaðamönnum í morgun sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að eftir væri að ganga frá endanlegum kjörum landsins. Fulltrúar íslenskra stjórnvalda halda til Moskvu í fyrramálið til viðræðna við Rússa.
Í frétt bankans er sagt að lánið muni verða til þriggja til fjögurra ára á kjörum á bilinu 30-50 punktum yfir Libor-vöxtum og að Putin, forsætisráðherra Rússlands, hafi staðfest þessa ákvörðun.
„Forsætisráðherra Íslands hóf að athuga möguleika á slíkri lánafyrirgreiðslu á miðju sumri. Sérfræðingar Seðlabanka og stjórnarráðsins munu halda til Moskvu mjög fljótlega, en þessi lánafyrirgreiðsla mun treysta gjaldeyrisforða Íslands og styrkja grundvöll íslensku krónunnar,“ segir í frétt Seðlabankans.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is