Þriðjudagur 07.10.2008 - 09:32 - Ummæli ()

Seðlabanki: Evra fest í 131 krónu, Gvt 175 – unnið með öllum ráðum að hækkun gengisins

2739700734_066017a8e4.jpgSeðlabanki Íslands hefur ákveðið að eiga viðskipti á millibankamarkaði í dag á gengi sem tekur mið af gengisvísitölu 175. Það samsvarar um 131 krónu gagnvart evru, segir í frétt frá  Seðlabankanum.

Þetta þýðir um 20-30% styrking gengis miðað við þá skráningu í gær.

Forsætisráðherra hefur samþykkt þessa aðgerð.

Þó þetta gengi sé hærra en var í lok síðustu viku er það mun lægra en samrýmist stöðugu verðlagi til skamms tíma. Nú mun verða unnið að hækkun gengisins með það markmið að verðbólga hjaðni hratt, en nánari tilkynningar um fyrirkomulag gengismála og gengi krónunnar verða kynntar á allra næstu dögum.

Gengi krónunnar hefur fallið gríðarlega undanfarnar vikur og er orðið mun lægra en samrýmist jafnvægi í þjóðarbúskapnum.

Til stendur að grípa til aðgerða til að styðja hækkun gengisins á ný og koma á stöðugleika í gengis- og verðlagsmálum. Seðlabankinn ætlar ekki að láta neins ófreistað í þeim efnum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is