Sveitarfélög misvel í stakk búin til að mæta efnahagsvandanum
Halldór Halldórsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði á RÚV í morgun að þær aðstæður sem nú væru komnar upp kæmu við okkur öll og hefði allstaðar sömu áhrif.
Aðspurður um stöðu einstakra sveitarfélaga sagði hann þau misvel í stakk búin til að mæta vandanum.
Mörg sveitarfélög hefðu tekið lán í erlendri mynt, misjafnlega há. Nú skipti máli hvernig gengið muni þróast, mikilvægast væri að fá gengisskráninguna í lag.
Halldór vildi ekki tjá sig um hvort einhver sveitarfélög myndu ekki geta staðið við skuldbindingar sínar um þjónustu, en það væri samstarfsverkefni allra að tryggja eðlilega starfsemi og þjónustu.
Halldór hefur boðað til aukafundar með stjórn íslenskra sveitarfélaga á föstudaginn þar sem menn munu setjast niður til að átta sig á stöðunni.
Myndina tók Ingibjörg Hinriksdóttir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is