Ég er orðin fullorðin, segir Paris Hilton
Paris Hilton er ástfangin og þar af leiðandi nennir hún ekki lengur að stunda partý og skemmtistaði eins og hún er fræg fyrir.
Svo virðist sem hún sé tilbúin til þess að setja partýkjólana til hliðar og klæðast svuntu í staðinn.
„Benji og ég horfum á kvikmyndir og ég elda risastórar máltíðir handa honum,“ sagði hún í sjónvarpsþætti Ellen DeGeneres.
„Ég er stórkostlegur kokkur!“
„Lífstíll minn er gjörbreyttur. Við förum ekki lengur út á lífið nema það sé í sambandi við vinnunna. Mér líður eins og ég sé orðin fullorðin.“
„Þegar maður er einstæður þá eru hlutirnir öðruvísi af því að mann langar út á lífið að skemmta sér með vinkonum sínum.“
„En þegar maður er í sambandi og er ástfanginn þá þjónar það engum tilgangi að fara út af því að mann langar bara til þess að vera saman og gera venjulega hluti.“
Paris finnst hún loksins hafa fundið draumaprinsinn eftir að hafa kysst marga froska og er jafnvel að íhuga barneignir á næsta ári.
„Ég held að ég sé nú í fyrsta skipti í alveg frábæru sambandi með manni sem ég treysti fullkomlega, og sem kemur mjög vel fram við mig og myndi aldrei særa mig.“
„Mig langar alveg pottþétt að eignast þrjú til fjögur börn. Og það fljótlega – kannski eftir eitt eða tvö ár.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is