Miðvikudagur 08.10.2008 - 12:08 - Ummæli ()

Fær íslenska sendinefndin fund í Moskvu?

david-kastljos1.jpgÍslenska sendinefndin sem á að fara til Rússlands til að semja um 4 milljarða evra lán við Rússa hafði enn ekki fengið tíma hjá rússneskum yfirvöldum í gærkvöldi.

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í viðtali í við fréttastofu RÚV í gærkvöldi, að hann hefði óskað við fjármálayfirvöld í Rússlandi að þau ættu fund með sendinefndinni á föstudaginn kemur, en ekki væri enn vitað hvort af þeim fundi verður, eða hvort það þurfi jafnvel að bíða til mánudags.

Davíð, sem sendi út fréttilkynningu bankans í gær um lánsvilyrðið, sem síðan var dregin til baka, viðurkennir að misvísandi skilaboð vegna fréttatilkynningarinnar hafi skaðað efnahagslífið. Hann sagði að Seðlabankinn tæki það á sig. „Það sér ekki á þó við bætum því við,“ sagði hann.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is