Seðlabankar Ameríku og Evrópu taka höndum saman og lækka vexti umtalsvert
Seðlabankar um allan heim hafa tekið höndum saman og lækkað vexti umtalsvert. Ákvörðun seðlabankanna er söguleg og endurspeglar hið alvarlega uppnám og nánast upplausnarástand sem nú ríkir á fjármálamörkuðum heimsins.
Kolsvört skýrsla sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birtir í dag spáir snöggri niðursveiflu í öllum helstu hagkerfum heims, sem séu að sökkva í hringiðu yfirstandandi fjármálaupplausnar.
Þetta er dekksta spá IMF í áraraðir. Þar segir að hagkerfi Bandaríkjanna og Evrópu séu á barmi efnahagskreppu. Enn eigi þó eftir að spilast úr núverandi ástandi fármálamarkaða sem sé það versta frá heimskreppunni á fjórða áratugnum.
Bandaríski seðlabankinn reið á vaðið og lækkaði stýrivexti sína um 0,5 prósentustig niður í 1,5%. Aðrar þjóðir hafa fylgt í kjölfarið.
Seðlabanki Evrópu lækkar í 3,75 prósent úr 4,25 prósentum. Einnig hafa Engalandsbanki og seðlabankar Kanada, Svíþjóðar og Sviss lækkað vexti hjá sér. Japanski seðlabankinn segist styðja þessar sameiginlegu aðgerðir hinna bankanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is