Fimmtudagur 09.10.2008 - 08:30 - Ummæli ()

Ágúst Ólafur Ágústsson varaform. Samfylkingar vill að bankastjórar Seðlabankans verði látnir fara

agust-olafur1.jpgÁgúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, vill að allir þrír bankastjórar Seðlabankans verði látnir fara. Ágúst Ólafur sagði í viðtali við fréttastofu RÚV í morgun, að bankastjórnin hefði gert mörg mistök að undanförnu. Hann segir líka þörf á myndarlegri lækkun stýrivaxta.

Ágúst segir mistök bankastjórnarinnar m.a. felast í því að auka ekki gjaldeyrisforðann í tíma, að tryggja ekki nægilegt lánsfé auk þess sem tilraun bankans til þess að festa gengið hafi mistekist. Ágúst Ólafur segir nauðsynlegt að endurvekja traust á Seðlabankanum og það verði ekki gert með núverandi stjórnendur við stjórnvölinn.

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra vildi ekki taka undir það með Ágústi að víkja ætti bankastjórunum frá. Hann segir að stjórnvöld eigi eftir að fara í gegnum málið og að ekki sé komið að slíkum uppgjörspunkti.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is