Auknar líkur á efnahagsaðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Stjórnvöld á Íslandi munu vera nær því en nokkru sinni að leita efnahagsaðstoðar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, segir í Fréttablaðinu í dag.
Sendinefnd frá sjóðnum er stödd hér á landi, einkum til að vera ráðgefandi við aðgerðir, en hugsanleg aðstoð hefur einnig verið rædd.
Fulltrúar sjóðsins hafa skýrt stjórnvöldum frá því að undirstöður efnahagslífsins hér séu taldar vera styrka, sem er túlkað á þann veg að sjóðurinn telji sig ekki þurfa að taka yfir stjórn efnahagsmála eða leggja til stórtækar aðgerðir.
Þó hefur komið fram að verði aðstoð sjóðsins þegin, séu vísbendingar um að seðlabankar annarstaðar í heiminum tækju vel í að lána Íslandi fjármagn.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á blaðamannafundi í gær ekki útilokað að leita efnahagsaðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Lán frá Rússlandi útilokaði það ekki.
Íslendingar eru meðal stofnaðila sjóðsins og hafa verið skuldlausir við hann frá árinu 1987.
Aðstoð fékkst frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum árið 1982.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is