Fimmtudagur 09.10.2008 - 06:58 - Ummæli ()

FME yfirtók Kaupþing í nótt – Nær öll bankastarfsemi í landinu í höndum ríkisins

kaupthing-2.jpgNánast öll bankastarfsemi er nú höndum ríkisins eftir að Fjármálaeftirlitð yfirtók Kaupþing í nótt. Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings og Sigurður Einarsson stjórnarformaður, héldu á fund starfsmanna Fjármálaeftirlitsins stuttu eftir miðnætti í nótt og stóð fundurinn um hálfa klukkustund.

Í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu er ítrekað að bankainnlán á Íslandi séu tryggð að fullu. Útibú Kaupþings, þjónustuver, hraðbankar og netbankar eru opnir, en yfirtakan er gerð til að tryggja eðlilega bankastarfsemi á Íslandi.

Stefnt er því að viðskiptavinir bankans finni sem minnst fyrir breytingum.

Þessir aðilar hafa verið skipaðir í skilanefnd Kaupþings: Finnur Sveinbjörnsson, hagfræðingur, Knútur Þórhallsson, löggiltur endurskoðandi, Bjarki H. Diego, hrl., Guðný Arna Sveinsdóttir, viðskiptafræðingur og Steinar Þór Guðgeirsson, hrl.

Fjármálaeftirlitið metur það svo að þessi aðgerð sé nauðsynlegt fyrsta skref til að ná markmiðum nýsettra laga og til að tryggja eðlilega bankastarfsemi innanlands og öryggi innstæðna á Íslandi.

Á RÚV segir að Kaupþing sé sá banki sem mest hafi vaxið síðastliðin ár. Geir Haarde hafi sagt á fréttamannafundi í Iðnó í gær að ósennilegt væri að ríkið yfirtæki Kaupþing en þó ekki útilokað.

Kaupthing Singer and Friedlander, dótturfélag Kaupþings í Bretlandi, var sett í greiðslustöðvun í gær. Daily Telegraph segir að allt að 770 fjármála-og bankastarfsmenn í Lundúnum, Surrey, Glasgow, Birmingham og á eynni Man muni missa vinnuna við þrot Kaupthing Singer and Friedlander.
Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum Kaupþings hér á landi séu tryggðar að fullu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is