Fimmtudagur 09.10.2008 - 08:25 - Ummæli ()

Umsókn Íslands að Evrópusam- bandinu yrði afgreidd með hraði

index.jpgFréttablaðið segir frá því í dag að einn af varaforsetum Evrópuþingsins, Diana Wallis, hafi sent Olli Rehn, stækkunarmálastjóra Evrópusambandsins, bréf þar sem hún skori á hann að aðildarumsókn frá Íslandi fengi flýtimeðferð gegnum ESB-kerfið.

Ef Ísland væri tekið með hraði inn í Evrópusambandið gæti það orðið landinu styrkur í efnahagsþrengingunum, segir í tilkynningu frá skrifstofu Wallis.

Rehn mun hafa sagt að aðildarviðræður við Ísland gætu tekið hátt í ár,  en Wallis kveðst hafa eftir öðrum heimildum að hugsanlega væri hægt að ljúka viðræðum á hálfu ári og jafnvel á skemmri tíma.

Það er tekið fram, að auðvtiað sé það undir Íslendingum komið hvort þeir sæki um aðild, en Wallis segist gruna að „athafnasvigrúm ríkisstjórnarinnar í Reykjavík þrengist nú snöggt í ljósi efnahagsástandsins í landinu. Svo virðist sem köll eftir inngöngu í ESB úr öllum áttum stjórnmálaumræðunnar og frá leiðtogum atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar séu að ná hámarki“.

Wallis segir sína tilfinningu að með sérreglum um sjávarútveg væri hægt að semja um fulla aðild Íslands að ESB á nokkrum vikum frekar en mánuðum og hún telur þetta hljóta að vera góð tíðindi fyrir Ísland þar sem svo skjót afgreiðsla myndi að talsverðu leyti binda enda á efnahagsóvissuna í landinu.

Leitað var viðbragða frá skrifstofu Ollis Rehn í Brussel, og talsmaður hans, Anna-Kaisa Itkonen, ítrekaði fyrri ummæli hans um að aðildarumsókn frá Íslandi yrði vel tekið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is