Ég er engin J-Lo, segir Eva Mendes
Eva Mendes er alls ekki ánægð með að fólk sé farið að líkja henni við Jennifer Lopez.
Eva vill meina það að leikferill hennar sé mun alvarlegri en leikferill Jennifer og segir að það sé ekkert líkt með þeim nema það að þær séu báðar af latneskum uppruna.
„Ég vil trúa því að leikferill minn verði mun alvarlegri en leikferill J-Lo,“ sagði hún.
„Við erum kannski báðar af latneskum uppruna, en þar endar samlíkingin.“
„Hún stjórnar ferli sínum eins og forseti stórs fyrirtækis, en það eina sem skiptir mig máli er að verða eins góð leikkona og ég get orðið.“
Eva sagðist líka nýlega ekki hafa neitt á móti því að vera talin kyntákn svo lengi sem það standi ekki í vegi fyrir henni sem leikkonu.
„Ég elska það. . . en það er mér ekki mikilvægt að vera alltaf álitin kynþokkafull,“ sagði hún.
„Það er allt í lagi svo lengi sem það takmarkar ekki feril minn.“
„Það er hluti af lífi mínu, en samt bara aukaatriði.“
Eva heldur sér í formi með því að hugsa um matarræðið, en hún segist þó ekki stunda megrunarkúra af kappi.
„Ég reyni að fara ekki yfir um, en jú, ég passa hvað ég set ofan í mig. . . ég forðast pasta, brauð, kökur, sælgæti, kex og ís,“ sagði hún.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is