Martti Ahtisaari, fyrrv. forseti Finnlands, hlaut friðarverðlaun Nóbels
Fyrrum forseti Finnlands, Martti Ahtisaari, hlaut friðarverðlaun Nóbels nú fyrir stundu.
Talsmaður Nóbelsverðlauna- nefndarinnar, Ole Danbolt Mjøs, sagði margar ástæður liggja að baki valinu á Ahtisaari.
Árin 1989-1990 hafi Ahtisaari haft mikið að segja um frelsun Nabimias.
Árið 2005 lét hann til sín taka í friðarmálum Aceh-héraðs í Indónesíu og árið 1999 vann hann krefjandi starf til lausnar stríðinu í Kosovo Í ár hefur hann reynt að finna lasnir til friðar í Írak.
„Nóbelsnefndin hefur oft veitt verðlaunin friðarsinnum og í dag er Martti Ahtisaari einn fremsti boðberi friðar í heiminum,“ sagði Mjøs.
Ahtisaari er 71 árs, en hann starfaði sem grunnskólakennari en hóf störf hjá finnska utanríkisráðuneytinu árið 1965.
Ahtisaari starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum í fjögur ár en var ráðinn ráðuneytisstjóri finnska utanríkisráðuneytisins til 1994. Hann var síðan kjörinn forseti Finnlands og gegndi því embætti í sex kjörtímabil.
Aðrir sem hlotið hafa friðarverðlaun Nóbels eru m.a. Nelson Mandela, F.W. de Klerk, Jimmy Carter og Al Gore.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is