Föstudagur 10.10.2008 - 09:37 - Ummæli ()

Mbl. og Fréttablaðið sameinast – Bæði blöð koma áfram út – 24 stundir inn í Mbl.

mbl-fbl.jpgSamningur hefur verið undirritaður milli Árvakurs hf. og 365 hf. um að sameina Fréttablaðið og Pósthúsið Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Bæði blöðin halda áfram að koma út en 24 stundir hættir semsérmiðill og rennur inn í Morgunblaðið.

Þetta kemur fram á vefmiðlum fyrirtækjanna mbl.is. og Vísir.is.

Árvakur mun greiða fyrir útgáfu nýs hlutafjár og yfirtöku skulda, en þar með kemur 365 inn í hluthafahóp Árvakurs.

Útgáfa 24 stunda verður sameinuð Morgunblaðinu.

 365.jpgSamningurinn er gerður í ljósi erfiðleika í blaðaútgáfu vegna  harkalegs samdráttar á auglýsingamarkaði og mikilla hækkana á pappírsverði.

Í tilkynninguni segir:

„Með þessu og öðrum breytingum sem taka gildi á næstu vikum og misserum næst fram mikil kostnaðarhagræðing á dagblaðamarkaði. Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs, segir að á sama tíma og fyrirtækin fari þessa leið til að hagræða í rekstri leggi þau mikla áherslu á að tryggja áfram ritstjórnarlegt sjálfstæði miðlanna.

„Þegar við sameinum 24 stundir Morgunblaðsrekstrinum stóreflum við Morgunblaðið með nýrri, kraftmeiri og ferskari helgarútgáfu blaðsins, sem verður kynnt um aðra helgi.“

Forstjóri 365, Ari Edwald, segir engar breytingar verða á starfsemi Fréttablaðsins vegna kaupanna þó alltaf sé leitað leiða til hagræðingar. Því verði haldið áfram.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafunda í félögunum og með e_dcim_127canon_img_2758.jpgfyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.  Fyrirætlanir um kaupin voru kynntar þar fyrir nokkru og  á næstu dögum verða einstakir þættir málsins nánar skýrðir.

Hluthafar Árvakurs fyrir kaupin voru félög í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Valtýr ehf., Lyfjablóm ehf. og Garðar Gíslason ehf.  Við kaupin kemur 365 hf. inn í hluthafahópinn og verður 36,5% hluthafi í Árvakri.  Þór Sigfússon er áfram stjórnarformaður Árvakurs og Einar Sigurðsson forstjóri félagsins. Félagið hefur sett sér markmið um að breikka eigendahópinn þegar aðstæður á markaði gefa tilefni til.

Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs hf., sagði sameininguna mikilvægt skref til að tryggja áfram öfluga dagblaðaútgáfu við mjög erfiðar rekstraraðstæður á fjölmiðlamarkaði.

Hann sagði sagði að félögin tvö, sem stæðu að þessu, gerðu sér góða grein fyrir mikilvægi þess að tryggja áfram ritstjórnarlegt sjálfstæði blaðanna.

Áherslan verði á að þjóna markaðnum, lesendum og auglýsendum, með ólíkum blöðum. Afar mikilvægt væri að ná að framleiða þessi blöð með hámarks samnýtingu á dýrum framleiðsluþáttum þar sem prentun og dreifing skipta mestu.

Ari Edwald, forstjóri 365 hf., sagði kaupin mikilvægt skref í að laga fjölmiðlarekstur að  aðstæðum á markaðnum.

„365 mun áfram taka þátt í blaðaútgáfu í gegnum þátttöku sína í Árvakri og jafnframt styrkir þessi breyting  365 og gerir því  fært að þjóna neytendum enn betur á öðrum sviðum fjölmiðlunar þar sem einkafyrirtæki glíma við mjög ósanngjörn samkeppnisskilyrði og ríkisstyrktan keppinaut.“

Ráðgjafi Árvakurs í viðskiptunum var Straumur fjárfestingarbanki og ráðgjafi 365 var Glitnir banki.“

Í pósti sem Ari Edwald sendi starfsmönnum sínum segir hann samninginn ekki hafa í för með sér neinar áherslubreytingar í útgáfu Fréttablaðsins eða starfsmannahaldi.

DV telur sig hafa heimildir fyrir því að tuttugu manns verði sagt upp í Hádegismóum í kjölfar sameiningarinnar.

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is