Föstudagur 10.10.2008 - 07:21 - Ummæli ()

Óeinkennisklæddir sérsveitarmenn gæta Geirs hvert sem hann fer

geir-idno3.jpgGeir Haarde forsætisráðherra hefur nú tvo lífverði úr sérsveit ríkislögreglustjóra sem fylgja honum hvert fótmál. Frá þessu segir á  mbl.is.

DV greindi frá málinu upphaflega í fyrradag.

Ríkislögreglustjóri átti frumkvæðið að þessari ráðstöfun, en viðskiptaráðherra, Björgvini G. Sigurðssyni , var boðin eins gæsla sem hann þáði bara í einn dag.

Embætti ríkislögreglustjóra gefur engar upplýsingar um tilhögun eða eðli þessarar öryggisgæslu, en gæslumenn Geirs eru óeinkennisklæddir.

Þar fyrir utan gæta fleiri  sérsveitarmenn öryggis kringum þá staði sem sem Geir sækir, meðal annars á hinum reglulegu blaðamannafundum þar sem hann kemur fram  með viðskiptaráðherra.

Fréttir af hótunum í garð starfsfólks Glitnis bárust í byrjun vikunnar, en engin breyting hefur verið gerð á öryggismálum þar.

Upplýsingastjóri Glitnis, Már Másson, segir að mikil áhersla sé lögð á öryggi í fjármálastofnunum yfirleitt og að engir reiðir viðskiptavinir hafi komið í bankann. Upp á síðkastið hafi ástandið þar að auki róast.

 

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is