Föstudagur 10.10.2008 - 08:15 - Ummæli ()

Samfylkingin vill losna við Davíð úr Seðlabankanum um leið og hægist um í efnahagslífi þjóðarinnar

davidodds2.jpgSamkvæmt heimildum Fréttablaðisins var á þingflokksfundi Samfylkingar á miðvikudag rætt um að bankastjórar Seðlabankans yrðu að víkja og að þaðan sé kominn málflutningur Ágústs Ólafar Ágústssonar, varaformanns flokksins, um brottrekstur Davíðs.

Þingmenn flokksins sem tjáðu sig um málið við Fréttablaðið voru varir um sig, en  Helgi Hjörvar vísaði í þá stefnu Samfylkingarinnar einn faglegur bankastjóri ætti að vera yfir Seðlabanka. Hann sagði Samfylkingarmenn bíða eftir að Davíð þiggi lán af Rússum en þegar unnið hafi verið úr vanda dagsins væri endurskipulagning Seðlabanka tímabær.

Ellert B. Schram er ekki í vafa um að bankastjóraskipti í Seðlabankanum séu nauðsynleg og Karl V. Matthíasson segir að ef í ljós komi að bankinn hafi gert mistök hljóti menn að skoða uppstokkun.

Í fréttum RÚV í morgun sagði að ungliðar Samfylkingarinnar væru alfarið á þeirri skoðun að skipta bæri um Seðalabankastjóra.

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa skoðun á málinu og telur farsælla að leita lausna en sökudólga. Hann hefur heldur ekki skoðun á því í augnablikinu hvort hann treystir núverandi bankastjórum til að leysa efnahagsvandann.
Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokknum, segir ábyrgðarlaust í stöðunni núna að skipta um bankastjora og segist treysta þeim núverandi meðan honum bjóðast ekki betri kostir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is