Laugardagur 11.10.2008 - 12:06 - Ummæli ()

Geir Haarde á flokksráðsfundi: Erfiðasta vika í sögu þjóðarinnar en mesta hættan liðin hjá

geir-idno31.jpgGeir H. Haarde, forsætisráðherra, ávarpaði flokksráðsfund Sjálfstæðisflokksins í dag og sagði að vikan sem væri að líða væri erfiðasta vika í sögu þjóðarinnar.
Á mbl.is kemur fram að Geir hafi sagt ómetanlegt að fá stuðning í formi tölvupósta, skeyta, kveðja og skilaboða hvaðanæva úr þjóðfélaginu.

Hann sagði Íslendinga vissulega í sárum vegna áfallanna sem dunið hefðu yfir og því miður stæðu hundruð manna frammi fyrir atvinnumissi og tugþúsundir hefðu án vafa beðið verulegt fjárhagstjón.
Þá sagði hann merkilegt, nú þegar heimsbyggðin væri á barmi kreppu, að gamlir múrar einangrunar og tortryggni risu milli ríkja þrátt fyrir samninga um frjáls viðskipti og frjálst flæði fjármagns og að hver hugsaði um sig í stórkarlalegri hagsmunabaráttu.

Þá var Geir harðorður í garð breskra stjórnvalda, samkvæmt frétt á mbl.is og sagði bresk stjórnvöld hafa með valdníðslu knésett stærsta fyrirtæki Íslendinga í vikunni.

Það yrði að skoða í fyllstu alvöru hvort Ísland leitaði réttar síns vegna þess máls.

Geir ítrekaði þó að mesta hættan væri liðin hjá, þó ljóst væri að erfiðleikar yrðu enn um hríð hjá landi og þjóð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is