Laugardagur 11.10.2008 - 11:43 - Ummæli ()

Green vill kaupa skuldir Baugs í Bretlandi fyrir tvo milljarða punda

philip_green_jpg_550×400_q95.jpgFinancial Times segir frá því í dag að sir Philip Green, eignadi BHS og Top Shops, hyggist leggja tvo milljarða punda, rúmlega 300 milljarða kr., í Baug í Bretlandi.

Green kom til Íslands í gærmorgun með einkaflugvél Jóns Ásgeirs og hefur átt viðræður við eigendur og forstjóra Baugs um lausn á málinu.

Hann segir í viðtali við FT að viðræðurnar gangi út á kaup hans á  öllum skuldum Baugs.
Hann geti ekki hugsað sér að eigur fyrirtækisins, sem hafa verið frystar, fari á hausinn.

Blaðið segir Baug hafa sagt að fyrirtækið ætlaði ekki að selja allar eignir sínar.

Green muni þó verða í sterkri stöðu til að semja um frekari eignarhlut í fyrirtækinu ef hann nái að semja um skuldirnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is