Þriðjudagur 14.10.2008 - 08:26 - Ummæli ()

Persónulegum munum stolið af heimili Beckham-hjónanna

83028268.jpgStarfsfólk í þjónustu Davids og Victoriu Beckham hefur verið handtekið grunað um að selja persónulegar eigur þeirra á eBay.

Eric og June Emmett hafa unnið fyrir Beckham-hjónin í meira en tíu ár og líta eftir glæsilegu heimili þeirra nærri Sawbridgeworth í Englandi.

„David og Victoria vilja ekki trúa þessu,“er haft eftir ónefndum uppljóstraraðila í breska slúðurblaðinu The Sun.

„Þau vita ekki lengur hverjum þau geta treyst. David var brjálaður þegar hann komst að þessu.“

Það voru foreldrar Victoriu sem komust að þjófnaðinum þegar þau sáu ýmsa muni úr eigu hennar og Davids á uppboðssíðunni, þ.á m. staka fótboltasskó af David og kjóla af Victoriu.

Þegar þau fóru að húsinu og komust að því að hlutirnir voru horfnir fékk pabbi Victoriu vini sína til þess að bjóða í þá á eBay.

Í kjölfarið var kallað til lögreglu og Emmett-hjónin handtekin.

Sagt er að margir munanna sem um ræðir hafi fundist við leit á heimili þeirra.

„David og Victoria eru bæði í miklu uppnámi,“ segir uppljóstrarinn.

„Það að einhver hafi verið að gramsa í persónulegum eigum þeirra er slæmt út af fyrir sig, en það er enn verra að vita að það gæti hafa verið fólk sem þau treystu.“

June Emmett neitaði í gærkvöldi að hafa aðhafst nokkuð rangt og telur ólíklegt að hún eða eiginmaður hennar verði kærð.

„Þetta kom eins og þruma úr heiðskýru lofti,“ sagði hún.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is