Miðvikudagur 15.10.2008 - 16:28 - Ummæli ()

Jóhanna ákveður mildari tök Íbúðalánasjóðs á skuldurum

johannasig.jpgÍbúðalánasjóður hefur rýmkað heimildir Íbúðalánasjóðs til að koma til móts við lántakendur sem lenda í greiðsluvanda mildað innheimtuaðgerðir sínar vegna ástands efnahagsmála.

Jóahanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra ákveða þetta með reglugerðarbreytingu sem tilkynnt var  í dag.

Frestur frá gjalddaga til sendingu greiðsluáskorunar verður framvegis fjórir til fjórir og hálfur mánuður frá elsta ógreidda gjalddaga í stað tveggja til tveggja og hálfs mánaðar áður. Heimilt er að afturkalla nauðungarsölu gegn greiðslu þriðjungs vanskila í stað helmings vanskila áður og rýmingarferli uppboðsíbúða hefur verið lengt úr einum mánuði í þrjá mánuði. Þá hafa heimildir til greiðslufrestunar vegna sölutregðu á eldri íbúð verið rýmkaðar verulega. Íbúðalánasjóði bætist einnig það úrræði að lántakendur eigi val um að greiða eingöngu vexti og verðbætur af vöxtum í tiltekinn tíma, leiði það til lausnar á vandanum.

Umræddar heimildir koma til viðbótar eldri úrræðum, skuldbreytingum vanskila, lengingu lána og frystingu afborgana (höfuðstól, verðbótum og vöxtum) um allt að þrjú ár.

Úrræði Íbúðalánasjóðs vegna greiðsluvanda lántakenda eiga við, hvort sem lánin eru í innlendri eða erlendri mynt, svo fremi að lánin heyri undir Íbúðalánasjóð.

Auk þeirra ákvarðana sem hér hefur verið lýst og hafa þegar tekið gildi mun félags- og tryggingamálaráðherra leggja fram á Alþingi frumvarp til laga sem heimilar Íbúðalánasjóði að lengja lán viðskiptavina sinna um allt að 30 ár í stað 15 ára áður. Einnig verða útfærðar reglur vegna mögulegrar útleigu Íbúðalánasjóðs á því húsnæði sem stofnunin kann að eignast á nauðungaruppboðum til fyrri íbúa, hvort sem um er að ræða húsnæði í eigu einstaklinga eða leigufélaga. Slík leiga yrði ávallt í takmarkaðan tíma í samræmi við hagsmuni beggja aðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðherra í dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is