Peningar gufa upp í kerfinu
Námsmenn erlendis þurfa að bíða þess að nýir bankar verði stofnaðir svo þeir geti millifært af innlendum á erlenda reikninga. Þetta kemur fram á RÚV en þar segir að þeir námsmenn sem skipta við Glitni og Landsbankann ættu að geta millifært á reikninga sína erlendis eftir að bæði nýr Landsbanki og nýr Glitnir hafa verið stofnaðir.
Á heimasíðum Spron og Byrs kemur fram að námsmenn njóti forgangs við gjaldeyrisviðskipti.
Íslensk fjölskylda í Danmörku finnur ekki 300.000 krónur sem hún millifærði af reikningi Kaupþings á reikning Danske Bank en samkvæmt upplýsingafulltrúa Kaupþings eru enn hnökrar á gjaldeyrismillifærslum.
Hann segir að allar beiðnir um gjaldeyrisfærslur verði að senda til Seðlabankans og að þar sé mikið álag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is