Tryggvi Þór hættur sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra
Tryggvi Þór Herbertsson hefur látið af störfum sem efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde, forsætisráðherra eftir tveggja og hálfs mánaða starf.
Tryggvi fékk sex mánaða leyfi sem forstjóri fjármálafyrirtækisins Askar Capital til að sinna efnahagsmálaráðgjöfinni í ráðuneytinu, einkum á sviði peninga- og fjármálamarkaðar.
Í tilkynningu forsætisráðherraembættisins segir ekkert um ástæður fyrir brotthvarfi Tryggva, aðeins að forsætisráðherra og Tryggvi Þór hafi komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, auk þess sem forsætisráðherra færir Tryggva Þór „kærar þakkir fyrir velunnin störf á liðnum vikum og mánuðum.“
Tryggvi segir í samtali við mbl.is að hann hafi ekki verið látinn fara, hann og forsætisráðherra hafi tekið ákvörðun um starfslok saman og þetta sé ekkert persónulegt á milli þeirra. „Við komumst að samkomulagi um þetta. Geir er réttur maður á réttum stað og ég treysti honum fyllilega.“
„Það eru ekki nein önnur plön en að ég hefji störf hjá Askar að nýju,“ segir Tryggvi.
Ekki hefur heldur verið tilkynnt um eftirmann Tryggva.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is