Fimmtudagur 16.10.2008 - 09:58 - Ummæli ()

Hrikaleg útreið Íslands í virtum breskum blöðum – enn hrikalegri í slúðurblöðunum

jon-asgeir.jpgÍsland hefur verið í brennidepli erlendra fjölmiðla undanfarið og að minnsta kosti áttatíu blaða- og sjónvarpsmenn hafa nýtt sér aðstöðu blaðamannamiðstöðvar Miðbæjarskólans, segir í Morgunblaðinu.

Þar segir að Íslendingar geri sér allflestir grein fyrir því að um alvarlegt mál sé að ræða og þeir sem fylgst hafi með umfjöllun í erlendum fjölmiðlum telji þá draga upp dekkri mynd af þjóðfélaginu en við, sem hér lifum og hrærumst, könnumst við.

Erlendir fjömiðlar hafa meðal annars fjallað um tómar hillur matvöruverslana og sagt grafalvarlegir frá því að eina glaðværa fólkið á skemmtistöðum borgarinnar væri það sem væri í heimsókn á landinu.

Þessi orð Morgunblaðsins eru orð að sönnu.

Virt bresk blöð hafa dregið upp dökka mynd af ástandinu og bresku blöðin verið óvinveitt Íslendingum, ekki síst hvað varðar Icesave og Baug.

Það kemur því kannski engum á óvart að slúðurblöðin gangi lengra og sé fátt heilagt þegar kemur að umfjöllun um „ómerkilega Íslendinga“.

Í vikunni birtist í mailonline  fjandsamleg umfjöllun um Jón Ásgeir þar sem segir í fyrirsögn að „djöflarnir séu að njóta síðustu daganna í helvíti“.

Milljarðamæringurinn Jón Ásgeir, ljóshærða konan hans og vinir þeirra sem komu Íslandi á kaldan klaka, flissi yfir dýrum vínum, ósnortin af hrikalegu ástandinu í kringum þau.

Blaðamaður segist hafa séð Jón frjálslega klæddan í hópi vina á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Gjaldþrota banki hans Glitnir skuldi breskum hlutabréfaeigendum milljónir punda, svo og fyrirtækjum og góðgerðarstofnunum.
Meðan Reykjavík brenni og eignir séu frystar sé hr. Johannesson  hinsvegar greinilega ekki blankur, um það vitni 85 punda flaska af hvítvíni á borðinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is