Föstudagur 17.10.2008 - 10:23 - Ummæli ()

Ummæli The Times misskilningur – eignir Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi ekki undir skiptastjórn

ernst3.jpgEyjunni hefur borist yfirlýsing frá skilanefnd Landsbanka Íslands hf., þar sem segir að frétt um að bresk yfirvöld hafi óskað eftir að endurskoðunarfyrirtækið Ernst &Young búi sig undir að annast skiptastjórn á eignum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi sé á misskilningi byggð.

Umfjöllun The Times sé úr lausu lofti gripin, en skilanefnd Landsbanka Íslands hf. og bresk yfirvöld eigi nú í góðu samstarfi um meðferð málefna bankans í Bretlandi.

Hið rétta er, segir í yfirlýsingunni, að síðastliðinn mánudag veitti Bank of England útibúi
Landsbankans í London lán að fjárhæð eitt hundrað milljónir punda, sem notast  skuli til að efna lánsloforð útibús Landsbankans við fyrirtæki sem flest séu bresk og reiði sig á lánafyrirgreiðslu bankans í rekstri sínum.  Hér sé um að ræða tugi fyrirtækja sem veita tugþúsundum manna vinnu og stöðvun lánafyrirgreiðslu við fyrirtækin hefði haft mjög alvarlegar afleiðingar.

Orðrétt segir í yfirlýsingunni:

„Í þessum hópi fyrirtækja eru tvö fyrirtæki sem tilheyra Baugi Group, en fyrirgreiðsla við þau varðar aðeins lítinn hluta þeirrar fyrirgreiðslu sem hér um ræðir.

Í tengslum við lánveitinguna varð það að samkomulagi milli Landsbankans og Bank of England að endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young skyldi hafa eftirlit með ráðstöfun lánsfjárhæðarinnar og fer það eftirlit fram í þökk og í góðri samvinnu við Landsbankann.

Að svo komnu máli eru ekki uppi áform uppi um að óska gjaldþrotaskipta á búi Landsbanka Íslands hf. og miðast vinna skilanefndar hans við að varðveita verðmæti eigna hans að því marki sem það er unnt í því skyni tryggja að þær eða andvirði þeirra standi kröfuhöfum bankans til reiðu.

Komi hins vegar til slíkra gjaldþrotaskipta, mun þeirra verða óskað fyrir íslenskum dómstólum og munu skiptin fara fram á grundvelli íslenskra laga sem byggð eru á sam-evrópskum reglum um það hvernig skuli farið með gjaldþrotaskipti á búum fjármálafyrirtækja.  Samkvæmt þeim myndi  starfsemi útibús Landsbankans í London falla undir íslensk gjaldþrotaskipti á búi bankans.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is