Þriðjudagur 21.10.2008 - 10:55 - Ummæli ()

Halle Berry við stjórnvölinn í kynlífinu

831528551.jpgHalle Berry er ekki hrædd við að taka stjórnina í eigin hendur þegar kemur að kynlífi.

Í viðtali við tímaritið Esquire, sem nýlega valdi hana kynþokkafyllstu konuna, segist hún hafa lært að taka ábyrgð á sínum eigin fullnægingum.

„Þið vitið þetta sem er sagt um að konur beri ábyrgð á sínum eigin fullnægingum?“ sagði hún.

„Það er allt satt, og hvað mig varðar þá gerir það mig ábyrga fyrir fjári góðum fullnægingum.“

„Þær eru mun betri fullnægingar en þær sem ég fékk þegar ég var 22 ára, og ég myndi ekki láta karlmann stjórna því.“

„Ekki lengur. Núna myndi ég bjóða þeim að slást með í leikinn.“

„Ég er búin að læra hvað virkar. Ég veit hvað kemur mér til. Ég bíð ekki eftir því að eitthvað gerist. Ég kem hlutunum af stað.“

„Og ég læt þetta ekki snúast um tíðni – ég er meira fyrir ákafa og dýpt.“

Halle segir einnig að ef að samband hennar við barnsföður hennar, Gabriel Aubry, taki einhvern tímann enda þá sé afar ólíklegt að hún fái sér yngri elskhuga.

„Karlmenn á tvítugsaldri? segir hún.

„Gleymdu því.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is