Þriðjudagur 21.10.2008 - 15:22 - Ummæli ()

Helmingurinn íhugar að flytja af landi brott

farinn.jpgÍ því óvissuástandi sem nú ríkir á Íslandi hafa margir velt þeim möguleika fyrir sér að flytja af landi brott.

Þetta kemur greinilega fram í óformlegri könnun sem Margrét Hugrún Gústavsdóttir, blaðakona og eyjubloggari setti upp á vefsíðu sinni á dögunum.

Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að rétt tæplega helmingurinn af þeim 451 sem gáfu atvæði sitt hafa íhugað þann möguleika að flytja af landinu. 10% eru byrjuð að undirbúa brottför og 21% eru erlendis en langar ekki að snúa aftur til Íslands.

Aðeins 21% þeirra sem gáfu atkvæði eru staðráðin í að vera áfram á Íslandi.

Þá er það spurning hvaða ungu einstaklingar það eru sem eiga að byggja upp nýtt Ísland með menntun sinni og þekkingu?

landflotti1.jpg


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is