Þriðjudagur 21.10.2008 - 10:35 - Ummæli ()

Íslensku barnabókaverðlaunin 2008: Steindýrin eftir Gunnar Theodór

steindyrin_minni.jpgGunnar Theodór Eggertsson hreppti Íslensku barnabókaverðlaun í ár fyrir sögu sína Steindýrin. Verðlaunin voru afhent í morgun við hátíðlega athöfn í Hlíðaskóla í Reykjavík.

Í fréttatilkynningu segir að dómnefnd telji  hér á ferðinni hörkuspennandi og frumlega ævintýrasögu. Hún sækii efnivið sinn í þjóðsögur og ævintýri en sé þó engu lík. Steindýrin sé bók sem lestrarhestar muni eiga erfitt með að leggja frá sér.

Við athöfnina voru börn úr skólanum með skemmtiatriði og í lok hennar lástu ungir lesendur stutta kafla úr verðlaunabókinni.  

Gunnar Theodór Eggertsson er bókmennta- og kvikmyndafræðingur og Steindýrin er fyrsta bók hans. Hann hlýtur að launum 400.000 krónur og viðurkenningaskjal.

Að Íslensku barnabókaverðlaununum standa auk Forlagsins: Fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar barnabókahöfundar (1915-1999), Ibby á Íslandi og Barnavinafélagið Sumargjöf. Árlega er auglýst er eftir handritum sem höfundar senda inn undir dulnefni. Úr þeim velur dómnefnd skipuð börnum og fullorðnum verðlaunasöguna og tilkynnt er um vinningshafann daginn sem bókin kemur út.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is