Ekki eru allir Bretar Brown – Sálfræðingar við Oxford sýna okkur skilning
Margir vilja eflaust helst ekkert jákvætt af Bretum vita þessa dagana. En það eru til góðir og skilningsríkir Bretar – þeir eru ekki allir eins og Brown.
Þetta kom til dæmis í ljós hjá hópi íslenskra sálfræðinga sem var á leiðinni á námskeið sem haldin hafa verið reglulega í Oxford háskóla og hópurinn hafði bókað sig á. Námskeiðin, í hugrænni atferlismeðferð, hafa verið vel sótt af Íslendingum, en þykja nokkuð dýr.
Sá hópur sem fer út núna í byrjun nóvember fékk heldur betur glaðning þegar Oxford háskóli hafði samband við fólkið af fyrra bragði og sagði þeim að ákvörðun hafi verið tekin um að lækka námskeiðisgjöld Íslendinga verulega vegna kreppunar á eyjunni bláu.
Auður Gunnarsdóttir, sem hefur skipulagt kennslu hér á landi í hugrænni atferlismeðferð og námskeiðsferðirnar sagði í samtali við Eyjunnar að kennari frá Oxford hefði komið hingað og þá fyrst gert sér grein fyrir hversu alvarlegt ástandið var hér á landi.
„Hann beitti sér fyrir þessu og lét okkur vita að þeir hefðu lækkað námskeiðsgjöldin fyrir okkur um helming. Það hugsa semsagt ekki allir Bretar eins og Brown,“ segir hún. „Sem betur fer.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is