Föstudagur 24.10.2008 - 17:10 - Ummæli ()

Borgin býður fjölskyldum ókeypis í sund og annan dagamun í fjármálakrísunni

sund.jpgReykjavíkurborg býður upp á ýmsa möguleika á morgun, fyrsta vetrardag, fyrir þá sem vilja taka sér hvíld frá fjármálaáhyggjunum og slaka á með fjölskyldunni.

Það verður ókeypis í sundlaugar borgarinnar og ókeypis í þrjár ferðir til Viðeyjar. Í fjölskyldu og húsdýragarðinum verður boðið upp á ókeypis heitt kakó með rjóma auk þess sem alls konar aðrir ókeypis viðburðir hafa verið skipulagðir á vegum ýmissa stofnana og fyrirtækja borgarinnar.

Fjölskyldudagskráin Gerum okkur dagamun – fyrsta vetrardag var samþykkti á fundi borgarráðs í gærmorgun með tilliti til yfirstandandi efnahagsþrenginga. Í greinargerð með tillögu um hana kom fram að borgin hafi þegar brugðist við þrengri efnahag með aðgerðaráætlunum og skipun sérstaks borgarteymis vegna viðbragða og leiðsagnar við börn í borginni.

„Með fjölskyldudagskránni séu fjölskyldur í borginni hvattar til að eiga góðar stundir saman fyrsta vetrardag“ eins og segir á vef borgarinnar.

Dagkrána í heild má sjá hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is