Föstudagur 24.10.2008 - 16:45
- Ummæli
()
IMF spáir erfiðum tímum framundan á Íslandi. Vextir áfram háir
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, sögðu á blaðamannafundi í Reykjavík í dag að erfiðir tímar væru framundan á Íslandi. Samdráttur landsframleiðslu gæti orðið um 10%. Þeir sögðu að miklu skipti að koma í veg fyrir gjaldeyrisflótta úr landi þegar markaðir opna að nýju og því yrði að halda vöxtum innanlands háum áfram.
Paul Thomsen, formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sagðist ekki geta gert grein fyrir tillögum IMF í smáatriðum, en staðfesti að halli mundi verða á fjárlögum ríkisins næstu ár. Hann sagði IMF spá 4,5% verðbólgu hér á landi í lok næsta árs. Mikil óvissa ríkti þó um framvindu íslenskra efnahagsmála.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is