Ingibjörg Sólrún skrifar breskum þingmönnum. Hörð gagnrýni á bresku stjórnina
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur sent breskum þingmönnum bréf þar sem hún gagnrýnir bresku ríkisstjórnina harðlega fyrir þann skaða sem hún hafi valdið öllum Íslendingum með framgöngu sinni gegn íslensku bönkunum á dögunum. Hún hvetur þingmennina til að beita sér fyrir endurreisn á fyrri samskiptum þjóðanna.
Dagblaðið The Independent segir frá þessu í dag.
Fram kemur í breska blaðinu að um sé að ræða afar óvenjulega gagnrýni á bresku stjórnina frá erlendum ráðherra, „an extraordinary diplomatic attack on the British Government“ eins og það er orðað.
Blaðið segir að Ingibjörg Sólrún saki jafnvel bresk stjórnvöld um að stuðla að árásum á Íslendinga sem heimsæki Bretland með því að skapa andúð á landinu. Um þetta segir orðrétt: „Ms Solrun Gisladottir even accused the Government of provoking attacks on Icelanders visiting Britain by stoking hostility towards her country. „Icelanders as a nation have been tarred with the same brush and are suffering real abuse in some cases,“ she said.“
Blaðið segist hafa afrit af bréfinu undir höndum. Ekki kemur fram hvort það var sent öllum þingmönnum á breska þinginu eða aðeins völdum hópi.
Fram kemur að Austin Mitchell, þingmaður Verkamannaflokksins sem er formaður þverpólitískrar íslensk-breskrar nefndar þingsins, hafi hvatt David Miliband utanríkisráðherra til að beita sér fyrir því að leysa togstreituna við Íslendinga. Hann telur að Bretar hefðu átt að hjálpa Íslendingum í fjármálakreppunni en segir að í staðinn hafi þeir aukið á vandann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is