Fimmtudagur 06.11.2008 - 22:04 - Ummæli ()

Ég átti að sjást en ekki heyrast, segir Nicole Kidman um hjónabandið við Tom Cruise

83152590.jpgHingað til hefur Nicole lítið tjáð sig um skilnað sinn við Tom Cruise, en hefur þó gefið í skyn að hann hafi verið afar sársaukafullur fyrir hana.

Parið skildi stuttu eftir tíu ára brúðkaupsafmælið sitt, og Nicole hefur nú greint frá því að í hjónabandinu hafi henni liðið eins og hún ætti að sjást en ekki heyrast og að hún hafi alltaf verið í skugga eiginmanns síns.

„Mér leið eins og ég hefði aðeins orðið fræg fyrir að vera með honum,“ sagði hún í viðtali við tímaritið Glamour.

„Mér fannst kvikmyndirnar sem ég lék í snemma á ferli mínum ekki góðar og þess vegna hélt ég mig í bakgrunninum.“

„Ég hugsaði með mér að ég ætti ekki skilið að vera þarna.“

„Við fórum á Óskarsverðlauna-afhendinguna og ég hugsaði með mér að ég væri aðeins þarna honum til stuðnings.“

„Mér fannst það vera skylda mín að klæða mig í fallegan kjól og láta sjá mig, en ekki heyrast í mér.“

Það var ekki fyrr en eftir skilnaðinn árið 2001 sem Nicole fór að láta til sín taka í kvikmyndaheiminum í kvikmyndum á borð við Moulin Rouge og The Hours þar sem hún lék Virginiu Woolf.

Hún er nú gift kántrý-söngvaranum Keith Urban og eignuðust þau saman dótturina Sunday Rose fyrir fjórum mánuðum síðan.

Tom Cruise er eins og kunnugt er giftur leikkonunni Katie Holmes og saman eiga þau dótturina Suri.

Nicole og Tom ættleiddu saman tvö börn, þau Isabellu, 15 ára, og Connor, 13 ára


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is