Jóhanna segir nýja leið, greiðslujöfnun, til skoðunar vegna verðtryggðra húsnæðislána
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, segir að svonefnd greiðslujöfnunarleið sé nú til skoðunar á vegum félags- og tryggingaráðuneytins til að koma til móts við greiðsluvanda fólks.
Hún segir að frysting verðtryggðra lána á sama hátt og gert hafi verið vegna gengisbundnu lánanna sé hins vegar illframkvæmanleg. Slíkt hefði í för með sér að eigið fé íbúðalánasjóðsmyndi þurrkast út á tveimur mánuðum og hefði afgerandi áhrif á getu lífeyrissjóða til að standa við skuldbindingar sínar.
Jóhann sagði í viðtali í hádegisfréttum RÚV, að svokölluð greiðslujöfnunarleið, sem nú væri til skoðunar, miðaði að því að koma í veg fyrir að það skapaðist misgengi milli launa og lána.
„Það er náttúrulega aðalatriðið að launin geti staðið undir greiðslubyrðinni,“ sagði Jóhanna. „Við erum að skoða svona nokkurs konar greiðslujöfnunarleið í því sambandi,“ segir hún. Jóhanna sagði það skýrast á næstu dögum hvort þessi leið sé fær en útskýrði ekki nánar í hverju hún fælist.
„Við erum að vinna eins hratt og við getum,“ segir Jóhanna. „Við erum bara í björgunaraðgerðum með öll þessi mál en það verður að vanda til þeirra. Það er ekki hægt að hlaupa að þessu, við verðum að skoða hvaða áhrif þær leiðir hafa sem við förum.“
Hún segist vonast til að lög um greiðsluaðlögun og hugsanlega greiðslujöfnunarleiðina vegna húsnæðislána verði samþykkt fyrir jól.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is